Fotbolti.net
09.08.17 - 06:00
Þórarinn Jónas Ásgeirsson

Burnley nælir sér í markvörð (Staðfest)

Adam Legzdins í leik með Birmingham síðasta vetur

Adam Legzdins í leik með Birmingham síðasta vetur

Canon

Mynd: Getty Images

Burnley hafa fengið markvörðinn Adam Legzdins í sínar raðir frá Birmingham. Legzdins skrifar undir þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið og er fimmti leikmaðurinn sem gengur í raðir félagsins í sumar. Kaupverðið er óuppgefið.
Burnley hafa verið í markvarðarleit í sumar eftir að hinn gamalreyndi Paul Robinson ákvað að leggja hanskana á hilluna og mun Legzdins því fylla hans skarð og berjast um markvarðarstöðuna við Tom Heaton.

Þessi þrítugi enski markvörður hefur verið á flakki um ensku neðri deildirnar á sínum ferli og hefur alls leikið með 10 liðum á ferlinum. Hann lék 15 leiki fyrir Birmingham í Championship deildinni í fyrra.





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.