09.08.17 - 21:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dalbert til Inter á 20 milljónir evra (Staðfest)

Dalbert er farinn til Mílanó.

Mynd: Twitter

Dalbert er farinn til Mílanó.

Mynd: Twitter
Inter hefur staðfest kaup á brasilíska bakverðinum Dalbert frá Nice. Ítalska félagið gaf út yfirlýsingu þess efnis í dag.
Dalbert skrifaði undir fimm ára samning við Inter.
Dalbert skrifaði undir fimm ára samning við Inter.
Þessi 23 ára gamli bakvörður kemur til Inter frá franska félaginu Nice fyrir 20 milljónir evra, það sem nemur 18 milljónum punda.
Hann er sjötti leikmaðurinn sem Inter kaupir í sumar, en áður höfðu Matias Vecino, Milan Skriniar, Facundo Colidio, Borja Valero og Daniele Padelli samið við þetta sögufræga félag.
Dalbert var fyrr í sumar orðaður við Liverpool og Arsenal, en á endanum var það Inter sem hreppti hann.
„Velkominn til Milan Dalbert og gangi þér vel í ævintýrinu,\" segir í yfirlýsingu sem Inter gaf út í dag.

📣✍️ | #Dalbert is now a #Nerazzurri player, signing a contract until 2022! 🇧🇷⚫️🔵
— F.C. Internazionale (@Inter_en) August 9, 2017
👉 https://t.co/0lq5vCENjw#WelcomeDalbert #InterIsComing pic.twitter.com/nQ2QZgauwI