09.08.17 - 15:38
Magnús Már Einarsson
Gray til Watford á metfé (Staðfest) - Kynntur með Football Manager

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Watford hefur keypt framherjann Andre Gray frá Burnley en kaupverðið er í kringum 18 milljónir punda.
Hinn 26 ára gamli Gray verður þar með dýrasti leikmaðurinn í sögu Watford.
Hinn 26 ára gamli Gray verður þar með dýrasti leikmaðurinn í sögu Watford.
Gray skoraði níu mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en þessi snöggi framherji kom til Burnley frá Brentford fyrir tveimur árum.
Gray átti eitt ár eftir af samningi sínum við Burnley en hann hafði tilkynnt félaginu að hann myndi ekki gera nýjan samning. Burnley ákvað því að selja.
Watford kynnti Gray til leiks með skemmtilegu myndbandi í anda tölvuleiksins Football Manager. Myndbandið má sjá hér að neðan.

🌧️ | It\'s a grey day at #watfordfc. Perfect for a spot of @FootballManager... pic.twitter.com/okMzXRaZsN
— Watford FC (@WatfordFC) August 9, 2017