Fotbolti.net
09.08.17 - 11:30
Magnús Már Einarsson

Sebastian Larsson til Hull (Staðfest)

Sebastian Larsson til Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hull City hefur fengið sænska miðjumanninn Sebastian Larsson í sínar raðir.

Hinn 32 árs gamli Larsson kemur frítt til Hull eftir að samningur hans hjá Sunderland rann út fyrr í sumar.

Larsson skrifaði undir eins árs samning við Hull í dag og hann er klár í slaginn í Championship deildinni fyrir komandi tímabil.
Larsson hefur spilað með Sunderland undanfarin sex ár en þar áður lék hann með Birmingham og Arsenal.

Samtals hefur Larsson leikið yfir 500 leiki á Englandi en hann á einnig 90 landsleiki að baki með Svíum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.