09.08.18 - 17:30
Ívan Guðjón Baldursson
Brighton fær ungan Svía (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Svíinn ungi Peter Gwargis er búinn að skrifa undir samning við Brighton í ensku úrvalsdeildinni.
Peter er aðeins 17 ára gamall og kemur frá Jönköpings Södra, þar sem hann var búinn að festa sig í sessi í byrjunarliðinu.
Peter hefur leikið fyrir yngri landslið Svía og hefur verið lýst sem einum efnilegasta miðjumanni þar í landi.
Hann mun líklega ekki koma mikið við sögu með aðalliði Brighton enda er hann fenginn til félagsins sem leikmaður fyrir framtíðina.