Fotbolti.net
09.08.18 - 16:36
Ívan Guðjón Baldursson

Brighton krækir í Dan Burn (Staðfest)

Brighton krækir í Dan Burn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brighton er búið að festa kaup á enska varnarmanninum Dan Burn frá Wigan.
Burn hefur verið lykilmaður hjá Wigan undanfarin tvö ár og verður lánaður aftur til félagsins þar til í janúar.

Í janúar mun hann loks ganga til liðs við sína nýju liðsfélaga og kynnast úrvalsdeildarlífinu á nýjan leik, en hann lék níu úrvalsdeildarleiki fyrir Fulham tímabilið 2013-14.

Burn er 26 ára gamall miðvörður og er kaupverðið óuppgefið en talið nema tæplega 5 milljónum punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.