Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 09. ágúst 2018 13:52
Magnús Már Einarsson
Dendoncker til Wolves á láni (Staðfest)
Leander Dendoncker.
Leander Dendoncker.
Mynd: Wolves
Wolves hefur fengið miðjumanninn Leander Dendoncker á láni frá Anderlecht. Úlfarnir eiga forkaupsrétt á leikmanninum næsta sumar á tólf milljónir punda.

Dendoncker er 23 ára gamall en hann á yfir 170 leiki að baki með Anderlecht.

Dendoncker var í belgíska landsliðshópnum á HM í sumar en hann á sex landsleiki að baki.

Úlfarnir eru á fullu að vinna í að styrkja leikmannahóp sinn fyrir fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina en liðið mætir Everton á laugardaginn.

Athugasemdir
banner
banner
banner