Fotbolti.net
09.08.18 - 17:31
Elvar Geir Magnússon

Holmes níundu kaup Derby í sumar (Staðfest)

Duane Holmes.

Duane Holmes.

Canon

Mynd: West Ha

Miðjumaðurinn Duane Holmes er kominn til Derby County frá Scunthorpe United. Hann er níundi leikmaðurinn sem Frank Lampard, stjóri Derby, fær til félagsins í sumar.

Holmes fæddist í Bandaríkjunum fyrir 23 árum síðan en flotti síðan til Englands.
Áður hafði Derby, sem hafnaði í 6. sæti Championship-deildarinnar á síðasta tímabili, krækt í: Mason Mount, Harry Wilson, Florian Jozefzoon, George Evans, Jack Marriott, Fikayo Tomori, Martyn Waghorn og Scott Malone í sumarglugganum.

„Ég er ánægður með að Duane sé mættur til Derby,\" segir Lampard. „Hann er spennandi leikmaður sem getur spilað í sóknarstöðunum líka. Hann gæti reynst okkur mikilvægur, bæði núna og í framtíðinni.\"

Scunthorpe var ekki bara að missa á gluggadeginum. Liðið fékk til sín sóknarmann frá Wigan eins og sjá má hér að neðan.

✍️ Scunthorpe United is delighted to announce the signing of attacker Ryan Colclough for an undisclosed fee from Wigan Athletic - https://t.co/KGmBRZPYmt

The 23-year-old signs a three-year deal.#UTI #IRON pic.twitter.com/nGMgPrYwMM

— Scunthorpe United FC (@SUFCOfficial) August 9, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.