West Ham hefur keypt framherjann Lucas Perez frá Arsenal á fjórar milljónir punda.
Perez var kynntur til sögunnar með skemmtilegu myndbandi tengdu Fantasy, draumaliðsdeildinni, eins og sjá má neðst í fréttinni.
Hinn 29 ára gamli Perez kom til Arsenal frá Deportivo La Coruna á 17,1 milljón punda árið 2016 en hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá skyttunum.
Á síðasta tímabili var Perez í láni hjá Deportivo La Coruna en hann er nú farinn til West Ham.
West Ham mætir Liverpool í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn.
Is this the real life?
— West Ham United (@WestHamUtd) August 9, 2018
Is this just fantasy? pic.twitter.com/Wl0Ul9VifT
Athugasemdir