Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 09. ágúst 2018 16:41
Elvar Geir Magnússon
Sam Clucas til Stoke (Staðfest)
Clucas er mættur til Stoke.
Clucas er mættur til Stoke.
Mynd: Getty Images
Stoke City hefur fengið miðjumanninn Sam Clucas frá Swansea en bæði lið féllu úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Clucas, sem er 27 ára, var bara eitt ár hjá Swansea eftir að hafa komið á 15 milljónir punda frá Hull City. Hann féll því úr ensku úrvalsdeildinni tvö ár í röð.

Clucas er keyptur til Stoke á 6 milljónir punda og gerir fjögurra ára samning.

Stoke er spáð aftur upp í ensku úrvalsdeildina.

Smelltu hér til að sjá öll helstu tíðindin á gluggadeginum

Taktu þátt í umræðunni á Twitter með því að nota #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner