Swansea er búið að næla í velska vinstri bakvörðinn Declan Cristopher John sem kemur frá Rangers í Skotlandi.
Declan John er uppalinn hjá Cardiff og gerði garðinn frægan þar en náði ekki að festa sig í sessi í byrjunarliðinu og var seldur til Rangers í fyrra.
John er 23 ára gamall og á 5 A-landsleiki að baki fyrir Wales auk rúmlega 20 leikja fyrir yngri liðin.
John mun hjálpa Swansea í Championship deildinni eftir að liðið féll úr úrvalsdeildinni í vor.
Athugasemdir