Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 09. ágúst 2018 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vestri fær enskan miðjumann (Staðfest)
Úr leik hjá Vestra.
Úr leik hjá Vestra.
Mynd: Sigurjón J. Sigurðsson
Vestri var að bæta við sig leikmanni. Um er að ræða enska miðjumanninn Danny Kabeya.

Kabeya er á 23. aldursári, fæddur árið 1995.

Félagaskiptaglugginn á Íslandi lokaði í síðustu viku en félög hafa viku til að ganga frá félagaskiptum erlendis frá. Vestra tókst að klára skiptin á Kabeyaa í tæka tíð.

Kabeya er með reynslu úr utandeildunum á Englandi.

Hann kemur til með að hjálpa Vestra í þeirri hörðu toppbaráttu sem framundan er í 2. deild karla. Vestri er sem stendur á toppi deildarinnar með 27 stig, en tvö önnur lið eru líka með 27 stig. Næstu leikur Vestra er gegn Aftureldingu um helgina og gæti Kabeya þá fengið að þreyta frumraun sína.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner