Fotbolti.net
09.08.19 - 14:02
Magnús Már Einarsson

Bologna kaupir Andra Fannar (Staðfest)

Andri Fannar Baldursson.

Andri Fannar Baldursson.

Canon

Mynd: Breiðablik

Ítalska félagið Bologna hefur keypt miðjumanninn Andra Fannar Baldursson frá Breiðabliki.

Andri Fannar fór fyrst til Bologna á láni í janúar. Á meðan lánstímanum stóð átti Bologna forkaupsrétt á leikmanninum og félagið hefur nú nýtt sér þann rétt.
„Andri Fannar sem er 17 ára gamall er einn efnilegasti leikmaður landsins. Mörg lið voru á eftir Andra Fannari fyrr á þessu ári en Andri valdi að fara til Bologna," segir á Facebook síðu Breiðabliks.

Síðastliðið haust spilaði Andri sinn fyrsta leik í Pepsi-deildinni aðeins 16 ára og er hann á meðal yngstu leikmanna til þess að spila í efstu deild með Blikum frá upphafi.

Andri Fannar hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og hefur leikið 29 landsleiki og skorað 4 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.