13. umferðin í Pepsi Max-deild kvenna fór fram á sunnudaginn. Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, er þjálfari umferðarinnar eftir öflugan 3-2 útisigur gegn Selfyssingum.
Shameeka Fishley var mögnuð á hægri kantinum hjá Stjörnunni gegn Selfossi og Betsy Hassett skoraði eitt mark auk þess að leggja upp annað.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir var maður leiksins í sannfærandi 4-0 sigri Vals gegn ÍBV. Hallbera Guðný Gísladóttir lagði upp mark og átti góðan dag í vinstri bakverðinum.
Sonný Lára Þráinsdóttir lokaði markinu og Kristín Dís Árnadóttir var góð í vörninni í 4-0 sigri Breiðabliks á Þrótti. Alexandra Jóhannsdóttir skoraði tvö mörk og Sveindís Jane Jónsdóttir lagði upp tvö.
Berglind Rós Ágústsdóttir lagði upp tvö mörk og Stefanía Ragnarsdóttir átti góðan leik í bakverðinum í 4-2 sigri Fylkis á Þór/KA.
Phoenetia Browne var síðan allt í öllu í 4-2 sigri FH á KR í fallbaráttuslag en hún skoraði eitt mark og lagði upp tvö.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir