Fotbolti.net
09.09.20 - 21:39
Victor Pálsson

Vitinha lánaður til Wolves (Staðfest)

Vitinha lánaður til Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: Wolves

Wolves í ensku úrvalsdeildinni hefur samið við miðjumanninn Vitor Ferreira eða Vitinha eins og hann er kallaður.
Vitinha er 20 ára gamall efnilegur leikmaður en hann skrifar undir eins árs langan lánssamning við Wolves.

Wolves getur svo keypt leikmanninn næsta sumar fyrir 18 milljónir punda ef hann stenst væntingar á Molineaux.

Vitinha er samningsbundinn Porto í heimalandinu Portúgal og spilaði átta deildarleiki á síðustu leiktíð.

Hann er um leið 11. portúgalski leikmaðurinn til að semja við aðallið Wolves. Þjálfari liðsins Nuno Santo er einnig frá Portúgal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.