09.10.18 - 15:30
Arnar Helgi Magnússon
Jón Þór hættir hjá Stjörnunni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson hefur látið af störfum hjá Stjörnunni. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem kom út nú rétt í þessu.
Samkvæmt heimildum Fótbolti.net er Jón Þór að taka við kvennalandsliði Íslands ásamt Ásthildi Helgadóttur.
Magnús Viðar formaður meistaraflokksráðs Stjörnunnar fordæmdi fyrr í dag vinnubrögð KSÍ varðandi það hvernig þeir nálguðust Jón Þór.
„Ég fordæmi vinnubrögð KSÍ þegar kemur að ráðningu þjálfara hjá sambandinu," sagði Magnús Viðar við Fótbolta.net í morgun."
„KSÍ hefur ítrekað haft samband við samningsbundna þjálfara og boðið þeim slík gylliboð að félögin eiga lítinn séns," bætti hann við og hélt svo áfram."

Yfirlýsing Stjörnunnar
Jón Þór kveður!
Stjarnan og Jón Þór Hauksson hafa komist að samkomulagi um starfslok og hefur hann þegar látið af störfum. Jón sem var einn af aðstoðarþjálfurum mfl. karla kom til okkar frá ÍA í janúar síðastliðnum en hann var einkar snöggur að vinna sér hug og hjörtu Stjörnumanna og hefur hann sett skemmtilegan svip á liðið og starfið hjá Stjörnunni á skömmum tíma. Stjarnan þakkar Jóni fyrir sitt framlag til félagsins
Jón Þór kveður félagið sem bikarmeistari!