09.11.12 - 17:08
Magnús Már Einarsson
Andri Steinn í Víking R. (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Steinn Birgisson hefur gengið til liðs við Víking R. en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.
Samningur Andra Steins við Leikni R. rann út á dögunum en hann hefur nú skrifað undir tveggja ára samning við Víking R.
Meiðsli settu strik í reikninginn hjá Andra Steini en hann gat aðeins tekið þátt í hálfu sumrinu vegna meiðsla.
Andri Steinn þekkir aðeins til hjá Víkingi því hann lék með liðinu síðari hluta sumars í fyrstu deildinni árið 2005.
,,Mér líkaði vel hjá félaginu þá og mér líst vel á þetta,\" sagði Andri Steinn við Fótbolta.net eftir að hann skrifaði undir nú síðdegis.
Á ferli sínum hefur Andri Steinn einnig leikið með Fjölni, Fylki, Aftureldingu, Fram, Grindavík, Keflavík og í Noregi.