09.11.12 - 15:43
Magnús Már Einarsson
Eggert Gunnþór til Charlton á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Eggert Gunnþór Jónsson, miðjumaður Wolves, hefur gengið til liðs við Charlton Athletic á láni næstu 28 dagana.
Eggert Gunnþór hefur ekki verið inni í myndinni hjá Wolves en hann mun nú fá tækifæri til að sanna sig hjá Charlton.

,,Hann er miðjumaður sem vill hafa hlutina einfalda. Hann vinnur tæklingar og er orkumikill,\" sagði Chris Powell stjóri Charlton.
,,Mér fannst við þurfa að styrkja miðjusvæðið. Við þurfum að hafa leikmenn sem hafa spilað áður í þessari deild og Eggert fellur í þann flokk.\"
Charlton er í 19. sæti í ensku Championship deildinni en liðið mætir Bristol City á útivelli á sunnudag.
Charlton komst upp í ensku Championship deildina á nýjan leik síðastliðið vor en liðið var síðast í ensku úrvalsdeildinni árið 2007. Þá voru Hermann Hreiðarsson og Rúrik Gíslason á mála hjá félaginu.

Heimild: Heimasíða Charlton