Fotbolti.net
09.11.12 - 10:09
Magnús Már Einarsson

Jóhann Þórhallsson í Þór (Staðfest)

Jóhann Þórhallsson í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Jóhann Þórhallsson hefur gengið til liðs við sitt gamla félag Þór á nýjan leik og mun leika með liðinu í Pepsi-deildinni næsta sumar.

Jóhann yfirgaf herbúðir Fylkis á dögunum en hann er fluttur á Akureyri og hefur nú skrifað undir tveggja ára samning við Þór.
Þessi 32 ára gamli framherji er uppalinn Þórsari en hann lék síðast með liðinu sumarið 2003.

Jóhann hefur leikið með Fylki frá því árið 2008 en í sumar skoraði hann fjögur mörk í fjórtán leikjum í Pepsi-deildinni.

Hann hefur einnig leikið með KR, Grindavík og KA á ferli sínum hér á landi.

Heimild: Heimasíða Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.