Fotbolti.net
09.11.16 - 11:30
Jóhann Ingi Hafþórsson

Joey Barton farinn frá Rangers (Staðfest)

Joey Barton spilaði lítið fyrir Ragners.

Joey Barton spilaði lítið fyrir Ragners.

Canon

Mynd: Getty Images

Rangers og Joey Barton hafa komist að samkomulagi um að slíta samstarfi sínu.
Hinn 34 ára gamli Barton skrifaði undir tveggja ára samning við skoska félagið í maí en báðir aðilar eru sammála um að leiðir eigi að skilja.

Hann hefur ekki spilað síðan í byrjun september en hann fór í agabann eftir rifrildi á æfingasvæðinu ásamt því að hann gerðist sekur um að brjóta lög um veðmál á knattspyrnuleiki.

Barton mætti á æfingu hjá Rangers á fimmtudaginn síðastliðinn en eftir það hefur hann verið fjarverandi vegna kvíða og hefur ekki verið á æfingasvæðinu síðan.

Honum var sagt að æfa með unglingaliði félagsins en svo virðist sem hann hafi tekið illa í það og ekki viljað mæta aftur á æfingu og því skilja leiðir.

Barton spilaði aðeins átta leiki fyrir Rangers.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.