09.11.16 - 12:50
Jóhann Ingi Hafþórsson
Nýr Mexikói í Þór/KA (Staðfest) - Sandra Stephany áfram

Sandra Stephany Mayor verður áfram hjá þór/KA.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sandra Stephany Mayor hefur skrifað undir nýjan samning við Þór/KA og mun hún leika með liðinu í Pepsi-deildinni næsta sumar.
Hún lék ansi vel á síðustu leiktíð þar sem hún skoraði 15 mörk í 21 leik.

Sandra er frá Mexíkó en landa hennar Bianca Elissa Sierra Carcia er gengin til liðs við Þór/KA. Bianca er 26 ára gömul og getur spilað sem miðvörður og miðjumaður.
„Báðir þessir leikmenn er algerlega frábær styrking fyrir okkar mjög efnilega og góða hóp. Bianca kemur með mikla reynslu og gæði í liðið, auk þess sem hún er þekkt fyrir að vera frábær leiðtogi. Sandra Stephany stimplaði sig inn síðasta sumar sem einn albesti leikmaður deildarinnar svo það er augljóslega mikið fagnaðarefni að hún ætli að vera áfram með okkur,\" sagði Halldór Jón Sigurðsson, betur þekktur sem Donni, þjálfari Þór/KA um liðsstyrkinn.