09.11.16 - 19:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Tómas Ingi í Þrótt Vogum (Staðfest)

Tómas Ingi skrifar undir

Mynd: Þróttur Vogum

Tómas Ingi skrifar undir

Mynd: Þróttur Vogum
Tómas Ingi Urbancic hefur gert samning við Þrótta frá Vogum um að leika með liðinu í 3. deildinni næsta sumar.
Framherjinn kom til Þróttar á síðustu leiktíð en þá var hann á lánssamning frá HK.
Tómas stóð sig afar vel í Vogunum en hann skoraði sjö mörk í átta leikjum fyrir félagið.
Hann er tvítugur HK-ingur sem fór til Reading á unga aldri.
„Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir komandi tímabil. Tómas er ekki bara góður leikmaður, yngri iðkendur félagsins fá glæsilega fyrirmynd til að líta upp til í framtíðinni. Fyrir hjá félaginu er ákveðinn kjarni leikmanna með gæði og markmið okkar verður að halda og bæta við metnaðarfullum leikmönnum og fá unga leikmenn til félagsins sem langar að bæta sig sem knattspyrnumenn og taka þátt í því að koma Þrótti Vogum á kortið,\" sagði Brynjar Gestsson, þjálfari Þróttara.
Þróttur Vogum spilar í 3. deildinni og endaði liðið í fimmta sæti með 27. stig í sumar en félagið komst upp úr 4. deild árið á undan.