Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 09. nóvember 2019 20:17
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Dagur Austmann í Leikni R. (Staðfest)
Dagur Austmann Hilmarsson.
Dagur Austmann Hilmarsson.
Mynd: Haukur Gunnarsson
Leiknir R. staðfesti nú í kvöld að varnarmaðurinn Dagur Austmann Hilmarsson væri kominn til félagsins.

Dagur skrifaði undir tveggja ára samning við Leikni R. sem spilar í Inkasso-deildinni.

Hann var í ÍBV þegar Íslandsmótið fór af stað á þessu ári en félagaskipti hans til Þróttar R. voru staðfest þann 13. maí, þar lék hann út tímabilið.

Þessi 21 árs gamli varnarmaður lék 17 leiki í Inkasso-deildinni fyrir Þrótt R. í sumar. Hann lék sinn fyrsta leik í 8 mánuði þann 1. maí, fyrir það hafði hann verið frá vegna meiðsla þar sem hann fótbrotnaði í september 2018.

Hér að neðan má sjá tilkynningu Leiknis sem birtist í kvöld.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner