Þróttur Reykjavík staðfesti í dag að Gunnlaugur Hlynur Birgisson væri kominn til félagsins.
Gunnlaugur kemur til Þróttar frá Víkingi Reykjavík, hann kom til Víkings árið 2018.
Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Þrótt sem þýðir að hann mun leika með liðinu út keppnistímabilið 2021.
Þróttur R. slapp naumlega við fall úr Inkasso-deildinni í sumar.
Hér að neðan má sjá fréttatilkynninguna sem birtist hjá Þrótti í dag.
Gunnlaugur Hlynur Birgisson hefur gengið til liðs við Þrótt frá Víkingi og gert tveggja ára samning við félagið, þ.e. út keppnistímabilið 2021. 👏👏👏Við bjóðum Gunnlaug velkominn í Dalinn, í hjartað í Reykjavík❤️og hlökkum til samstarfsins á næstu tímabilum. #Lifi pic.twitter.com/PjpMUEeMhU
— Þróttur (@throtturrvk) November 9, 2019
Athugasemdir