Newcastle óttast að kantmaðurinn spræki Allan Saint-Maximin missi af næstu vikum vegna meiðsla aftan í læri.
Saint-Maximin meiddist undir blálokin í sigrinum gegn Southampton í dag og hann sást fara heim á hækjum eftir leikinn.
Steve Bruce, stjóri Newcastle, sagði eftir leik að það eigi eftir að koma í ljós hversu alvarleg meiðslin eru en hann bætti við að Saint-Maximin hafi fundið fyrir þreytu fyrir leikinn í dag.
Ökklameiðsli urðu til þess að Saint-Maximin fór af velli gegn Sheffield United á fimmtudaginn og hann meiddist síðan aftur í dag.
Saint-Maximin kom til Newcastle frá Nice á 16,5 milljónir punda í sumar og hefur sýnt skemmtilega takta á tímabilinu.
Athugasemdir