Fotbolti.net
09.12.20 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Samtal rúmensku dómaranna náðist á hljóð

Samtal rúmensku dómaranna náðist á hljóð
Canon

Mynd: Getty Images

Það hefur mikið verið rætt um kynþáttafordómamál í leik PSG gegn Istanbul Basaksehir í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Liðin gengu af velli eftir tæpan stundarfjórðung eftir að Demba Ba og félagar á varamannabekk Basaksehir ásökuðu fjórða dómara rúmenska dómarateymisins um kynþáttafordóma.

Dómarinn var sakaður um að nota orðið 'negro' en á rúmensku þýðir orðið 'negru' einfaldlega svartur og er ekki talið rasískt nema í ákveðnum samhengjum.

Emmanuel Rosu, einn virtasti fréttamaður Rúmeníu, birti myndband á Twitter með upptöku af því sem fór fram á milli dómaranna.

„Þessi svarti þarna. Athugaðu hver það er. Þessi svarti þarna, það er ekki hægt að hegða sér svona," sögðu dómararnir.



Sjá einnig:
Istanbul Basaksehir gekk af velli gegn PSG
Mbappe: Webo við stöndum með þér
PSG mætir Istanbul Basaksehir á morgun (Staðfest)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.