Fotbolti.net
10.01.13 - 09:29
Hafliði Breiðfjörð

Íris Dóra Snorradóttir í HK/Víking (Staðfest)

Íris Dóra í leik með Fylki.

Íris Dóra í leik með Fylki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Íris Dóra Snorradóttir er komin aftur heim í HK/Víking en þetta var staðfest á vef HK í gær. Hún hefur leikið undanfarin þrjú ár með Aftureldingu og Fylki í Pepsi-deildinni en fer aftur heim til nýliðanna í Pepsi-deildinni.
Íris, sem er 21 árs, lék allan sinn feril með HK og síðan HK/Víkingi til 2009 en það ár skoraði hún 17 mörk fyrir meistaraflokkinn og var valin knattspyrnukona HK í mótslok.

Þrátt fyrir að hafa aðeins leikið það eina heila tímabil í meistaraflokki er Íris 10. markahæst í meistaraflokki HK/Víkings frá upphafi með 18 mörk alls í 24 leikjum.

Í framhaldi af því gekk hún til liðs við Fylki og síðan Aftureldingu og á að baki 34 leiki með liðunum í efstu deild, þar sem hún skoraði 7 mörk.

Þetta er góður liðsauki fyrir lið HK/Víkings sem hafnaði í öðru sæti 1. deildar í fyrra og leikur því í Pepsi-deildinni á komandi keppnistímabili.

Heimild: Vefur HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.