Fotbolti.net
10.01.17 - 06:00
Jóhann Ingi Hafþórsson

Alexander Aron í Þrótt Voga (Staðfest)

Alexander Aron við undirritun samningsins.

Alexander Aron við undirritun samningsins.

Canon

Mynd: Þróttur V.

Alexander Aron Davorsson hefur verið ráðinn sem spilandi aðstoðarþjálfari Þróttar frá Vogum og skrifar hann undir eins árs samning við félagið.

Hann er upalinn hjá Aftureldingu þar sem hann hefur spilað ásamt þvi að hann á leiki með Fram og Leikni F.
„Ég er mjög sáttur við að vera kominn til Þróttar þar sem ég mun leggja mig allan fram, bæði sem þjálfari og leikmaður. Ég hef í talsverðan tíma hugsað mér að snúa mér að þjálfun, þessi aðkoma mín til Þróttar gefur mér tækifæri á að halda áfram að spila en byrja jafnframt að koma mér inn í þjálfaramálin. Ég tel mig hafa heilmikið fram að færa og hlakka til samstarfsins við Binna og strákana í liðinu. Ég kveð Aftureldingu í góðri sátt en þar hef ég átt mín bestu og ánægjulegustu ár sem leikmaður,\" sagði Alexander.

Brynjar Gestsson, þjálfari Þróttara var mjög ánægður með að fá sinn mann.

„Að fá Alexander í Þrótt er mikil lyftistöng fyrir Þrótt og Voganna og sýnir að við Þróttarar viljum taka næsta skref í baráttunni. Alexander sem er mikill karakter mun passa vel inn í þetta umhverfi sem við erum að búa til og þróa hér í Vogum. Einnig er liðið að fá frábæran og reynslu mikinn knattspyrnumann. Mér líst vel á metnaðinn og andrúmsloftið í kringum félagið og reiknum við með enn frekari styrkingum með klassa leikmönnum eins og Alexander,\" sagði Brynjar.

Alexander hefur spilað 160 leki hér á landi og skorað í þeim 47 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.