10.01.17 - 16:04
Elvar Geir Magnússon
Badstuber ekki til City - Lánaður til Schalke (Staðfest)

Badstuber hefur verið í sífelldum meiðslavandræðum.

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Holger Badstuber er að fara til Schalke á láni út tímabilið frá Bayern München. Þýskalandsmeistararnir hafa greint frá þessu.
Badstuber er 27 ára en hefur verið að glíma við erfið meiðsli síðustu ár.
„Holger á skilið að spila. Hann hefur verið oft meiddur en nú er hann klár í slaginn og vill spila meira,\" segir Karl-Heinz Rummenigge, framkvæmdastjóri Bayern München.
„Hann bað okkur um leyfi fyrir því að vera lánaður til Schalke og við samþykktum það glaðir. Vonandi fær hann nóg af mínútum á næstu mánuðum og við óskum honum alls hins besta.\"
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, fór ekki leynt með að hafa áhuga á Badstuber sem mun hinsvegar fara í læknisskoðun hjá Schalke í vikunni.
Schalke situr í ellefta sæti þýsku Bundesligunnar en stöðuna má sjá hér að neðan.