Fotbolti.net
10.01.17 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Heimir fagnar fjölgun á HM: Jákvætt fyrir okkur

Heimir fagnar fjölgun á HM: Jákvætt fyrir okkur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Í morgun tilkynnti FIFA að frá og með HM 2026 verði þátttökuþjóðum fjölgað úr 32 upp í 48.

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íslands, er ánægður með þessi tíðindi.
„Ég held að við Íslendingar eigum að vera ánægðir með þetta,\" sagði Heimir við Fótbolta.net í dag.

„Þetta gefur þjóðum sem eru fámennari meiri möguleika og ég held að þetta sé bara jákvætt fyrir okkur.\"

„Ég held að það hafi sýnt sig í þessari Evrópukeppni í sumar að fjölgunin var jákvæð,\" sagði Heimir og vísaði til EM í fyrra þar sem í fyrsta skipti voru 24 þátttökuþjóðir.

Sjá einnig:
HM verður 48 liða mót (Staðfest)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.