10.01.17 - 09:46
Magnús Már Einarsson
HM verður 48 liða mót (Staðfest)

Þjóðverjar unnu HM 2014.

Mynd: Getty Images

Þjóðverjar unnu HM 2014.

Mynd: Getty Images
48 þjóðir verða með í úrslitakeppni HM frá og með árinu 2026 en þetta var staðfest nú rétt í þessu. Kosið var um málið hjá FIFA í dag og tillagan samþykkt.
Frá því árið 1998 hafa 32 þjóðir tekið þátt á HM en nú verða gerðar róttækar breytingar á mótinu.
Liðum verður skipt niður í sextán riðla en þrjú lið verða í hverjum riðli.

Tvö lið fara áfram úr hverjum riðli en þá taka við 32-liða úrslit. Sigurvegarar mótsins spila því samtals sjö leiki á mótinu.
Mótið fer fram á 32 dögum en leikirnir verða samtals 80 eftir að hafa áður verið 64. Breytingarnar taka þó ekki gildi fyrr en 2026 en á HM í Rússlandi 2018 og í Katar 2022 verða 32 þátttökuþjóðir.
Evrópa fær fleiri sæti í mótinu eftir breytingarnar og um leið aukast möguleikar Íslands á að komast í úrslitakeppnina.