10.01.17 - 18:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jovetic farinn til Sevilla (Staðfest)

Jovetic er genginn í raðir Sevilla.

Mynd: Getty Images

Jovetic er genginn í raðir Sevilla.

Mynd: Getty Images
Sóknarleikmaðurinn Stefan Jovetic hefur verið lánaður frá Inter á Ítalíu til Sevilla á Spáni út þetta leiktímabil, en þetta var staðfest nú fyrir stuttu.
Sevilla hefur lengi haft augastað á leikmanninum og nú er hann loksins mættur til Andalúsíu. Sevilla er með forkaupsrétt á honum.
Sevilla hefur lengi haft augastað á leikmanninum og nú er hann loksins mættur til Andalúsíu. Sevilla er með forkaupsrétt á honum.
Jovetic gekk í raðir Inter sumarið 2015 og byrjaði frekar vel í Mílanó-borg. Hann hefur þó lítið fengið að spila á þessari leiktíð og þegar Stefano Pioli tók við liðinu fékk hann leyfi til þess að fara annað.
Hann ákvað að semja við Sevilla og stefnir hann að því að endurvekja ferilinn, en þessi 27 ára gamli leikmaður sló í gegn með Partizan í heimalandinu og síðar Fiorentina.
Hann er annar leikmaðurinn sem Sevilla fær í þessum janúarglugga, en áður hafði félagið keypt Clement Lenglet frá Nancy í Frakklandi.

Presentación oficial de @sjovetic 👏⚽ #SevillaFC pic.twitter.com/yGFInQISYp
— Sevilla Fútbol Club (@SevillaFC) January 10, 2017