Anthony Pilkington er genginn til liðs við Wigan frá Cardiff eftir fjögur og hálft ár hjá félaginu.
Pilkington hefur ekki fengið einn einasta séns með Cardiff á leiktíðinni en hann lék öllu stærra hlutverki á síðustu leiktíð þegar liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni.
„Pilkington hefur góða reynslu úr Championship og ensku úrvalsdeildinni og er hann því frábær viðbót við okkar hóp," segir Paul Cook stjóri Wigan.
„Hann var í liði Cardiff sem að tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hann þekkir deildina inn og út, hann veit hvað þarf."
Pilkington hefur einnig leikið með Norwich og Huddersfield.
Athugasemdir