10.03.19 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Frimpong leggur skóna á hilluna 27 ára (Staðfest)

Mynd: Twitter

Mynd: Twitter
Miðjumaðurinn Emmanuel Frimpong hefur lagt skóna á hilluna aðeins 27 ára gamall vegna þrálátra hnémeiðsla.
Frimpong þótti afar efnilegur á sínum tíma, hann kom upp í gegnum uppeldisstarfið hjá Arsenal og var byrjaður að fá tækifæri með byrjunarliðinu þegar meiðslavandræðin fóru á fullt.
Eftir meiðslin var Frimpong lánaður í neðri deildir en náði aldrei góðum spilatíma neinsstaðar og var á endanum seldur til Rússlands.
Fyrir tveimur árum gekk Frimpong í raðir AFC Eskilstuna í Svíþjóð, spilaði tíu leiki og hélt svo til Kýpur þar sem hann gekk í raðir Ermis Aradippou. Í Kýpur fékk hann mikinn spilatíma en meiddist um haustið og hefur ekki spilað síðan.
Frimpong lék fyrir yngri landslið Englands en skipti svo yfir í Gana þar sem hann lék þó aðeins einn A-landsleik.

RETIREMENT FROM PROFESSIONAL FOOTBALL THANK YOU ALL GOOD BLESS👍🏿🙌🏿🙏🏿 pic.twitter.com/LaIYG6raw1
— EMMANUEL FRIMPONG (@IAMFRIMPONG26) March 7, 2019