Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 10. mars 2020 22:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Flestir leikir hjá Mourinho án sigurs
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Lærisveinar Jose Mourinho í Tottenham eru úr leik í Meistaradeildinni eftir tap gegn RB Leipzig í kvöld.

Tottenham fór alla leið í úrslit í fyrra, en fellur úr leik í 16-liða úrslitunum í ár.

Það hefur lítið gengið hjá Tottenham að undanförnu og hefur liðið ekki unnið í sex leikjum í röð. Það er met hjá Mourinho, hann hefur aldrei farið í gegnum jafnmarga leiki á ferli sínum.

Þjálfaraferill Mourinho spannar hvorki meira né minna en 935 keppnisleiki.

Næsti leikur Tottenham er gegn fyrrum félagi Mourinho, Manchester United, á sunnudaginn.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner