Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 10. mars 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Henderson og Robertson klárir gegn Atletico - Alisson áfram frá
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, gæti snúið aftur í liðið í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Atletico Madrid annað kvöld.

Henderson tognaði aftan í læri í 1-0 tapi Liverpool í fyrri leiknum fyrir þremur vikum síðan. Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, vill ekki gefa upp hvort hann komi beint inn í byrjunarliðið á morgun.

„Hendo er klár en hvort við gerum það, ég veit það ekki....kannski veit ég það og segi ekki frá," sagði Klopp í dag.

Vinstri bakvörðurinn Andy Robertson er klár í slaginn eftir að hafa verið hvíldur gegn Bournemouth um helgina vegna smávægilegra meiðsla.

Markvörðurinn Alisson er hins vegar ennþá meiddur og verður ekki með á morgun. Þá er óvíst um þátttöku hans í grannaslagnum gegn Everton á mánudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner