Fotbolti.net
02.08.26 - 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mudryk æfir með Chelsea í Hong Kong

Mudryk æfir með Chelsea í Hong Kong
Canon

Mynd: EPA

Mykhailo Mudryk er á leið til Hong Kong í æfingabúðir Chelsea en fjögurra ára keppnisbann sem enska fótboltasambandið hafði lagt á hann vegna ólöglegrar lyfjanotkunar var fellt úr gildi á dögunum.

Chelsea mætir Juventus 5. ágúst en Xabi Alonso, stjóri Chelsea, segir að það þurfi að gefa honum tíma.
„Við erum ánægðir fyrir hans hönd. Við getum ekki skilið hvað han hefur gengið í gegnum og hvernig honum líður miðað við það sem hann hefur þurft að þola," sagði Alonso.

„VIð viljum að hann finni sig sem hluta af liðinu því hann hefur æft einn í langan tíma. Hann hefur stuðning allra úr félaginu, frá liðsfélögum og starfsfólki. Þetta mun taka tíma en við sjáum til hvernig hlutirnir þróast þegar hann kemur."

Hann hefur ekki spilað keppnisleik síðan í nóvember 2024.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.