Fotbolti.net
02.08.26 - 21:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ástralskur landsliðsmaður á leið til Hull

Ástralskur landsliðsmaður á leið til Hull
Canon

Mynd: EPA

Hull City hefur náð munnlegu samkomulagi við Colorado Rapids um kaup á ástralska landsliðsmanninum Lucas Herrington.

Herrington er 18 ára en hann gekk til liðs við Colorado frá Brisbane Roar í janúar.
Hann er á leið í læknisskoðun og verður formlega orðinn leikmaður Hull í vikunni.

Það var mikill áhugi á Herrington, sérstaklega frá Ítalíu, og Hull brást skjótt við til að ganga frá kaupunum.

Herrington var í landsliðshópi Ástralíu á HM og kom við sögu í tveimur leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.