Fotbolti.net
10.03.25 - 21:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Guimaraes hetja Newcastle í Lundúnum

England: Guimaraes hetja Newcastle í Lundúnum
Canon

Mynd: EPA

West Ham 0 - 1 Newcastle
0-1 Bruno Guimaraes ('63 )
Newcastle vann West Ham í Lundúnum í kvöld en Bruno Guimaraes var hetja liðsins.

Fyrri hálfleikurinn var mjög rólegur en Newcastle fékk tækifæri eftir tuttugu mínútna leik en Alphonse Areola varði tilraun frá Harvey Barnes.

Eftir klukkutíma leeik þurfti Areola aftur að taka á honum stóra sínum. Boltinn fór af Max Kilman og virtist vera á leið í markið en Areola tókst að bjarga á síðustu stundu.

Stuttu síðar tókst Newcastle loksins að sigra Areola. Barnes átti fyrirgjöf inn á teiginn og Bruno Guimaraes kom boltanum í netið og tryggði liðinu stigin þrjú.

Newcatle er í 6. sæti með 47 stig en West Ham er í 16. sæti með 33 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal1+33
2Brentford1+33
3Everton1+23
4Hull City1+23
5Ipswich Town1+13
6Leeds1+13
7Aston Villa000
8Chelsea000
9Fulham000
10Liverpool000
11Man City000
12Newcastle000
13Bournemouth000
14Brighton000
15Sunderland1-10
16Nott. Forest1-10
17Man Utd1-20
18West Ham38-1939
18Crystal Palace1-20
19Burnley38-3722
19Tottenham1-30
20Wolves38-4120
20Coventry1-30
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.