Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 19:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Átti Van Dijk að fá víti þegar mark Liverpool var dæmt af?
Van Dijk ósáttur við dómarann.
Van Dijk ósáttur við dómarann.
Mynd: EPA
Liverpool þurfti að sætta sig við tap gegn Galatasaray í Meistaradeildinni í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna í 16-liða úrslitunum og fór hann fram í Tyrklandi.

Liverpool skoraði mark í seinni hálfleiknum sem var dæmt af vegna þess að Ibrahima Konate fékk boltann í höndina.

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, var ekki sáttur með dóminn þar sem honum fannst á sér brotið í aðdragandanum.

Það er alveg vel hægt að skilja Van Dijk en markið var dæmt af og fékk ekki að standa. Galatasaray fékk aukaspyrnu og leikurinn hélt áfram.

Með því að smella hér er hægt að sjá myndband af markinu.
Athugasemdir
banner
banner