Það eru þrír leikir að hefjast í Meistaradeildinni klukkan 20:00. Newcastle tekur á móti Barcelona, Atletico Madrid fær Tottenham í heimsókn og Atalanta spilar við Bayern München.
Anthony Gordon, sem hefur verið heitur fyrir framan markið í Meistaradeildinni, byrjar á bekknum hjá Newcastle gegn Barcelona. Hann er tæpur og William Osula, sem skoraði frábært mark gegn Manchester United á dögunum, leiðir sóknarlínuna.
Anthony Gordon, sem hefur verið heitur fyrir framan markið í Meistaradeildinni, byrjar á bekknum hjá Newcastle gegn Barcelona. Hann er tæpur og William Osula, sem skoraði frábært mark gegn Manchester United á dögunum, leiðir sóknarlínuna.
Hjá Barcelona byrja Lamine Yamal, Raphinha og Robert Lewandowski.
Byrjunarlið Newcastle: Ramsdale, Trippier, Burn, Thiaw, Hall, Tonali, Joelinton, Ramsey, Barnes, Osula, Elanga.
Byrjunarlið Barcelona: Garcia, Araujo, Cubarsi, Martin, Cancelo, Pedri, Bernal, Yamal, Lopez, Raphinha, Lewandowski.
Það eru athyglisverðar fréttir af Tottenham því Guglielmo Vicario byrjar á bekknum gegn Atletico Madrid en hann hefur ekki átt gott tímabil. Antonin Kinsky fær tækifæri í markinu.
Byrjunarlið Atletico: Oblak, Pubill, Le Normand, Hancko, Ruggeri, Simeone, Llorente, Cardoso, Lookman, Alvarez, Griezmann.
Byrjunarlið Tottenham: Kinsky, Romero, Danso, Van de Ven, Porro, Sarr, Gray, Spence, Tel, Richarlison, Kolo Muani.
Harry Kane byrjar á bekknum hjá Bayern München þar sem hann er tæpur vegna meiðsla. Nicolas Jackson er fremstur gegn Atalanta í kvöld.
Byrjunarlið Atalanta: Carnesecchi; De Roon, Hien, Kolasinac; Zappacosta, Pasalic, Sulemana, Bernasconi; Pasalic, Zalewski; Scamacca.
Byrjunarlið Bayern: Urbig; Laimer, Upamecano, Tah, Stanisic; Pavlovic, Kimmich; Olise, Gnabry, Luis Díaz; Jackson.
Athugasemdir


