Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 21:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heppinn að fá ekki rautt spjald annan leikinn í röð
Micky van de Ven.
Micky van de Ven.
Mynd: EPA
Mickey van de Ven, miðvörður Tottenham, var skúrkurinn í tapi gegn Crystal Palace á dögunum þar sem hann fékk rauða spjaldið.

Í næsta leik, gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni, var hann heppinn að fá ekki að líta annað rautt spjald.

Van de Ven fór nefnilega í mjög groddaralega tæklingu á David Hancko, varnarmann Atletico.

Það var ekki einu sinni flautað brot en atvikið var skoðað í VAR og slapp Hollendingurinn með skrekkinn. Hann fær að spila í kvöld þar sem bannið hans gildir bara í ensku úrvalsdeildinni.

Hægt er að sjá myndband af atvikinu hér fyrir neðan.


Van de Ven’s challenge on Hancko. No card given.
by
u/Sparky-moon in
soccer

Athugasemdir
banner