Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 21:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeildin: Dramatík í Newcastle - Tvö einvígi nánast búin
Yamal jafnaði í blálokin.
Yamal jafnaði í blálokin.
Mynd: EPA
Kinsky átti erfiðan leik.
Kinsky átti erfiðan leik.
Mynd: EPA
Julian Alvarez skoraði tvennu.
Julian Alvarez skoraði tvennu.
Mynd: EPA
Kane þurfti ekki að spila.
Kane þurfti ekki að spila.
Mynd: EPA
Það voru mjög svo áhugaverð úrslit í leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni í kvöld.

Newcastle tók á móti Barcelona á St James' Park og var þar dramatík í blálokin.

Það var nokkuð mikið jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik en í seinni hálfleiknum voru heimamenn sterkari. Þeir voru nokkrum sinnum búnir að hóta áður en Harvey Barnes skoraði á 86. mínútu.

Allt ætlaði um koll að keyra í Newcastle þar sem þetta virtist ætla að vera eina mark leiksins en í blálokin fékk Barcelona vítaspyrnu sem Lamine Yamal skoraði úr af miklu öryggi. Malick Thiaw var sá brotlegi og sefur hann væntanlega ekki mikið í nótt.

Newcastle eru væntanlega mjög svekktir að hafa ekki unnið þennan leik þar sem þeir voru sterkari aðilinn. Eftir jöfnunarmarkið er Barcelona í kjörstöðu að klára dæmið á heimavelli.

Senur í Madríd og Bayern rústaði
Í Madríd var svakalegur leikur þegar Atletico Madrid fór illa með Tottenham. Það var liðið korter af leiknum þegar Atletico var komið langt með að vinna einvígið.

Marcos Llorente gerði fyrsta markið eftir að Antonin Kinsky, sem fær tækifæri í marki Spurs, rann á rassgatið. Antoine Griezmann bætti við öðru marki eftir að Mickey van de Ven rann á rassinn og svo gerði Julian Alvarez þriðja markið nokkrum sekúndum síðar eftir önnur hræðileg mistök hjá Kinsky.

Öll þrjú mörkin eins og atriði í Klaufabárðunum en Kinsky var bara kippt af velli á 17. mínútu - svo slök var hans frammistaða.

Varnarmaðurinn Robin Le Normand gerði fjórða mark Atletico áður en Pedro Porro minnkaði muninn. Julian Alvarez gerði sitt annað mark snemma í seinni hálfleik en Dominic Solanke sá til þess að Tottenham á allavega einhvern möguleika í seinni leiknum.

Lokatölur 5-2 í Madríd en á Ítalíu valtaði Bayern München yfir Atalanta, 1-6. Serge Gnabry og Michael Olise léku á als oddi og Harry Kane þurfti ekki einu sinni að koma inn á. Hann var tæpur og sat allan tímann á bekknum.

Bayern er í stórkostlegum málum og þarf væntanlega ekki að hafa mikið fyrir því að komast áfram úr þessu.

Atalanta 1 - 6 Bayern
0-1 Josip Stanisic ('12 )
0-2 Michael Olise ('22 )
0-3 Serge Gnabry ('25 )
0-4 Nicolas Jackson ('52 )
0-5 Michael Olise ('64 )
0-6 Jamal Musiala ('67 )
1-6 Mario Pasalic ('90 )

Atletico Madrid 5 - 2 Tottenham
1-0 Marcos Llorente ('6 )
2-0 Antoine Griezmann ('14 )
3-0 Julian Alvarez ('15 )
4-0 Robin Le Normand ('22 )
4-1 Pedro Porro ('26 )
5-1 Julian Alvarez ('55 )
5-2 Dominic Solanke ('76 )

Newcastle 1 - 1 Barcelona
1-0 Harvey Barnes ('86 )
1-1 Lamine Yamal ('90 , víti)
Athugasemdir
banner