Brasilíski markvörðurinn Alisson Becker er ekki í leikmannahópi Liverpool sem flaug til Tyrklands til að spila við Tyrklandsmeistara Galatasaray í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Arne Slot þjálfari Liverpool tjáði sig um fjarveru Alisson í gærkvöldi og sagði að meiðslin ættu ekki að vera alvarleg. Alisson gæti verið klár í slaginn strax á sunnudaginn þegar Liverpool tekur á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni.
„Alisson fann fyrir einhverju undir lok æfingarinnar og við ákváðum að taka enga áhættu," sagði Slot.
„Við búumst ekki við að þetta séu alvarleg meiðsli. Það er mögulegt að hann verði klár í slaginn á sunnudaginn."
09.03.2026 17:00
Alisson fjarri góðu gamni og ferðaðist ekki með til Istanbúl
Athugasemdir


