Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 10. apríl 2020 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ronaldo við Beckham: Þú ert einn sá besti
Ronaldo og Beckham glaðir.
Ronaldo og Beckham glaðir.
Mynd: Getty Images
Ronaldo, sá brasilíski, segir David Beckham vera einn þann besta leikmann sem uppi hefur verið.

Ronaldo og Beckham léku saman hjá Real Madrid frá 2003 til 2007. Þeir voru saman á Instagram Live í gær.

„Minn maður, þú var stórkostlegur," sagði Ronaldo. „Að mínu mati ertu einn sá besti sem hefur spilað leikinn."

„Það hvernig þú fórst með boltann, það hvernig þú komst boltanum á hvaða stað sem þú vildir og án þess að horfa á mig. Ég ætti að þakka þér fyrir allar sendingarnar sem þú gafst mér."

Hér að neðan má sjá brot úr spjalli þeirra er Ronaldo tjáði Beckham það að enska hans yrði alltaf betri þegar hann væri búinn með nokkur vínglös.

Athugasemdir
banner
banner
banner