Fotbolti.net
10.04.26 - 21:21
Brynjar Ingi Erluson

Besta deildin: Meistararnir gerðu jafntefli við Blika í opnunarleiknum

Kristófer Ingi fagnar fyrsta marki Bestu deildarinnar

Kristófer Ingi fagnar fyrsta marki Bestu deildarinnar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Víkingur R. 1 - 1 Breiðablik
0-1 Kristófer Ingi Kristinsson ('4 )
1-1 Gylfi Þór Sigurðsson ('71 )
Lestu um leikinn
Íslandsmeistararnir í Víkingi gerðu 1-1 jafntefli við Breiðablik í opnunarleik Bestu deildar karla á heimavelli hamingjunnar í Víkinni í kvöld. Skelfileg mistök Antons Ara Einarssonar um miðjan síðari hálfleik kostuðu Blika stigin þrjú.

Víkingar eru taldir líklegasti til þess að verja titilinn í ár og fóru þeir sem sigurstranglegra liðið inn í þennan leik.

Blikar voru á öðru máli og byrjuðu frábærlega er Kristófer Ingi Kristinsson fékk sendingu frá Ágústi Orra Þorsteinssyni frá hægri vængnum, í gegnum alla vörn Víkinga, og var Kristófer í engum vandræðum með að setja boltann í netið.

Aðeins rúmar fjórar mínútur en annars var leikurinn ekki sú skemmtun sem áhorfendur voru að búast við.

Nikolaj Hansen fékk að vísu algert dauðafæri til að jafna metin er Gylfi Þór Sigurðsson stýrði aukaspyrnu sinni inn á teiginn og virtist það erfiðara fyrir Hansen að klúðra en að skora, en einhvern veginn tókst honum að setja boltann framhjá.

Í síðari hálfleik voru Víkingar líklegri og í raun ótrúlegt að þeir hafi ekki jafnað á 55. mínútu. Valdimar Þór Ingimundarson átti sendingu inn á Helga Guðjónsson sem átti skot sem Anton Ari varði út á Valdimar sem fór í frákastið en aftur varði Anton. Mögnuð sena.

Fimmtán mínútum síðar var Anton Ari aftur í sviðsljósinu með hræðilegum mistökum er hann kom út úr markinu og hreinsaði boltanum, þó ekki lengra en á Gylfa Þór sem lyfti boltanum yfir Anton og í netið.

Agalegt hjá Blikum sem höfðu náð að halda Víkingum ágætlega í skefjum.

Anton Ari náði að bregðast ágætlega við og sá við nokkrum tilraunum Víkinga undir lokin. Á síðustu mínútunni vildu Víkingar síðan fá vítaspyrnu er boltinn virtist fara í höndina á Ásgeir Helga Orrasyni, en Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, dómari leiksins, sá ekkert athugavert við það og lét leikinn halda áfram.

Mínútu síðar var leikurinn flautaður af og jafntefli líklega sanngjörn niðurstaða. Engin flugeldasýning en stál í stál leikur og hægt að fagna því að Besta deildin sé hafin!
Besta deildin: Meistararnir gerðu jafntefli við Blika í opnunarleiknum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.