Fylkir hefur fest kaup á Tuma Fannari Gunnarssyni frá Breiðabliki. Hann skrifar undir samning til tveggja ára við Fylki. Breiðablik er með endurkaupsákvæði á leikmanninum.
Tumi, sem er 21 árs gamall miðjumaður, lék á láni með Fylki síðasta sumar og spilaði hann alla 22 leiki liðsins í Lengjudeildinni og skoraði þar eitt mark.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net höfðu nokkur félög úr Lengjudeildinni áhuga á Tuma en Árbæingar hrepptu leikmanninn.

Tumi er uppalinn í Breiðabliki og spilaði hann fjóra leiki með liðinu í Bestu deildinni sumarið 2024. Hann hóf meistaraflokksferil sinn með Augnabliki í 3. deild árið áður, þar sem hann spilaði 13 leiki og skoraði tvö mörk.