Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
   fös 10. apríl 2026 22:02
Brynjar Ingi Erluson
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Gylfi Þór Sigurðsson
Gylfi Þór Sigurðsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Víkings í Bestu deildinni, gerði fyrsta mark Íslandsmeistarana í deildinni á þessari leiktíð er hann nýtti sér mistök Antons Ara Einarssonar í 1-1 jafnteflinu gegn Breiðabliki í Víkinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  1 Breiðablik

Landsliðsmaðurinn sagðist afar svekktur með að hafa ekki landað sigri í leiknum og taldi Víkinga líklegri í leiknum, en var ánægður að geta bjargað stigi.

„Svekkjandi að vinna ekki leikinn en jákvætt að koma til baka og ná að jafna. Skemmtilegur og erfiður leikur, veit ekki hvernig þetta var í sjónvarpinu en inn á vellinum fannst mér við vera líklegri til að skora. Gott samt að koma til baka eftir að hafa lent 1-0 undir,“ sagði Gylfi, en hann segir hafa vantað meiri ró í liðið.

„Kannski gæði og ró á síðasta þriðjungnum. Kannski fær boltann hraðar og erfitt að leikgreina þetta strax eftir leik en bara gæðin á síðasta þriðjungnum, yfirvegun og ró.“

Gylfi skoraði eftir hrikaleg mistök Antons Ara sem kom út úr teignum og átti slaka hreinsun sem fór beint á Gylfa sem lyfti boltanum snyrtilega yfir Anton og í netið.

„Bara búast við því versta. Ég bjóst við því að fá boltann og þá er ég búinn að tékka á markinu og undirbúa mig undir það að fá boltann en í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig. Það er gott að heilinn hugsar svona og ég var klár, þannig ég náði að taka 'touchi-ið' og gefa hann í markið,“ sagði Gylfi, sem sagðist hafa verið örlítið stressaður um að boltinn færi í þverslá. „Nei, kannski smá að hann myndi skoppa í slánna eða eitthvað en sem betur fer skoppaði þetta ekki nógu hátt.“

Hann var ánægður með stemninguna á leiknum.

„Geggjað. Þetta er kannski ekki svona á öllum leikjum en á flestum leikjum er geðveik mæting hjá stuðningsmönnunum og fullkominn fyrsti leikur á tímabilinu. Góð stemning og það sé fullur völlur.“

Undir lok leiks kölluðu Víkingar eftir vítaspyrnu er boltinn virtist fara í höndina á Ásgeiri Helga Orrasyni en Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, dómari leiksins, sá það ekki og ákvað að dæma ekki.

„Nei ég sá það ekki. Var þetta víti? Það er erfitt fyrir dómarana að meta þetta á 0,2 sekúndum en vonandi fá þeir VAR í framtíðinni hérna á Íslandi til að taka pressuna af þeim,“ sagði hann enn fremur, en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Slapp
banner