Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Albert: Þetta var ekki auðvelt
Jón Dagur: Alvaran hefst í haust
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
banner
   fös 10. apríl 2026 22:02
Brynjar Ingi Erluson
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Gylfi Þór Sigurðsson
Gylfi Þór Sigurðsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Víkings í Bestu deildinni, gerði fyrsta mark Íslandsmeistarana í deildinni á þessari leiktíð er hann nýtti sér mistök Antons Ara Einarssonar í 1-1 jafnteflinu gegn Breiðabliki í Víkinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  1 Breiðablik

Landsliðsmaðurinn sagðist afar svekktur með að hafa ekki landað sigri í leiknum og taldi Víkinga líklegri í leiknum, en var ánægður að geta bjargað stigi.

„Svekkjandi að vinna ekki leikinn en jákvætt að koma til baka og ná að jafna. Skemmtilegur og erfiður leikur, veit ekki hvernig þetta var í sjónvarpinu en inn á vellinum fannst mér við vera líklegri til að skora. Gott samt að koma til baka eftir að hafa lent 1-0 undir,“ sagði Gylfi, en hann segir hafa vantað meiri ró í liðið.

„Kannski gæði og ró á síðasta þriðjungnum. Kannski fær boltann hraðar og erfitt að leikgreina þetta strax eftir leik en bara gæðin á síðasta þriðjungnum, yfirvegun og ró.“

Gylfi skoraði eftir hrikaleg mistök Antons Ara sem kom út úr teignum og átti slaka hreinsun sem fór beint á Gylfa sem lyfti boltanum snyrtilega yfir Anton og í netið.

„Bara búast við því versta. Ég bjóst við því að fá boltann og þá er ég búinn að tékka á markinu og undirbúa mig undir það að fá boltann en í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig. Það er gott að heilinn hugsar svona og ég var klár, þannig ég náði að taka 'touchi-ið' og gefa hann í markið,“ sagði Gylfi, sem sagðist hafa verið örlítið stressaður um að boltinn færi í þverslá. „Nei, kannski smá að hann myndi skoppa í slánna eða eitthvað en sem betur fer skoppaði þetta ekki nógu hátt.“

Hann var ánægður með stemninguna á leiknum.

„Geggjað. Þetta er kannski ekki svona á öllum leikjum en á flestum leikjum er geðveik mæting hjá stuðningsmönnunum og fullkominn fyrsti leikur á tímabilinu. Góð stemning og það sé fullur völlur.“

Undir lok leiks kölluðu Víkingar eftir vítaspyrnu er boltinn virtist fara í höndina á Ásgeiri Helga Orrasyni en Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, dómari leiksins, sá það ekki og ákvað að dæma ekki.

„Nei ég sá það ekki. Var þetta víti? Það er erfitt fyrir dómarana að meta þetta á 0,2 sekúndum en vonandi fá þeir VAR í framtíðinni hérna á Íslandi til að taka pressuna af þeim,“ sagði hann enn fremur, en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Slapp
banner
banner
banner