Kristófer Ingi Kristinsson var rétt í þessu að skora fyrsta mark Bestu deildar karla árið 2026 er hann kom Blikum í 1-0 gegn Íslandsmeisturum Víkings í Víkinni.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 1 Breiðablik
Víkingar voru sigurstranglegri fyrir leikinn og voru að ógna með nokkrum fyrirgjöfum í byrjun leiks en það voru Blikar sem brutu ísinn á 4. mínútu.
Ágúst Orri Þorsteinsson fékk boltann hægra megin við teiginn, kom með hárfína sendingu á fjær á Kristófer sem setti boltann í autt markið.
Boltinn fór í gegnum alla vörnina hjá Víkingum og fyrsta markið komið í hús.
Þetta er annað árið í röð sem Bliki skorar fyrsta markið en Höskuldur Gunnlaugsson gerði fyrsta markið í 2-0 sigri á Aftureldingu á síðasta ári.
„FYRSTA MARKIÐ ER KOMIÐ!!
Blikar vinna boltann á vallarhelmingi Víkings.
Kristófer Ingi ber boltann upp í átt að vítateig Víkings, leggur hann út til hægri á Ágúst Orra sem rennir boltanum inn á markteiginn og þar er Kristófer aleinn. Kristófer gat ekki annað en skorað!
0-1!“ sagði Sæbjörn Steinke sem textalýsir leiknum hér á Fótbolti.net.

